Maren Dögg 3 ára :)Skvísur
Þá er litla daman orðin 3 ára, skellti inn nokkrum myndum, svona fyrir langömmu og afa, þau kunna ekkert á nútímann sem er nú facebook.. :)VáaaSkvísur
Hæ hæ ég veit ekki hvað ég hef verið að gera síðustliði mánuði en allvega hef ég lítið komið hingað inn.. kannski allt í lagi að bæta úr því.Dadarara.. leyniviðburður ársins er ekki leynilegur lengur.... ég er ólett!!! Iiiii.. Nei halló börnin koma víst ekki með storkinum.
Það er brúðkaup hjá yndislegasta pari í heimi, þau Sólrúnu og Andra. Þau ganga í það heilaga 7 mars. Ég er búin að þekkja þau í ansi mörg ár og erum við vinirnir búin að vita það lengi að þau tvö eiga eftir að deila fölskum framtíðinni og aldrei sleppa hvort öðru, sem er bara frábært því þau eru ekki neitt án hvort annað. Þau eiga eina litla, hana Þórey Eddu skæruliða og verður snilld að fylgjast með henni hlaupa í gegnum kirkjugólfið.
Maren Dögg dafnar rosa vel og er farin að tala alveg helling, ég þarf að fara að passa mig núna í kringum hana, ég flaug næstum því á rassin í hálkunni fyrir utan og segji ,,shitt" heyrist strax í minni, ..mamma shitt" krúttlegt en ekki alveg við hæfi.
alltaf eitthvað nýtt hjá henni, svo erum við að hætta á bleiju smátt og smátt en duddan hún verður með á fermingarmyndinni.. úff, Það er sko bíladudda, rúmdudda, ömmududda, taskadudda, einn dudda á öllum stað og tvær fyrir nóttina.Henni líkar mjög vel á leikskólanum sínum, ég er samt að sækja um flutning í leikskólann hjá mömmu og pabba, þá er hún með Aldísi, mér finnst svo leiðinlegt að þurfa að hafa hana frá 9 - nánast alveg 5, allt og mikið fyrir 2 ára, en með því að flytja hana þá getur hún fengið að fara eftir leikskóla heim til Heggu og Halla hafa með frænku sinni, sem er oft um 4, þá líður mömmunni betur.
Ég er byrjuð í skólanum aftur, ég get ekki viðhafist nema hafa lærdóm fyrir stafni, verð að vera upptekin.. eitthvað í blóðinu mínu. Tek spænsku 403 til að halda mér við og efnafræði 103 til að undurbúa mig fyrir hjúkrun í vetur
Eflaust á Aureyri. Get ekki beðið, heimanám, próf, verkefni, vísindaferðir, verknám.. Spennandi !!! Ég vara við bílaplaninu hjá Eigilshöllinni, múttu tókst að tvífótbrjóta sig þar fyrir utan , hreinlega datt í molinni mjög illa og fékk bara gifs upp á hné, næstu 5 vikur, geri aðrir betur. !! Sendi þér kossa

Vá farin að hátta klukkan er yfir 10 sem þýðir langt fram yfir minn háttatíma.. ég yngist ekkert sko.
Góðar nætur
Guðrún og skvísan
Hamingjusöm konaSkvísur
Sko það er ekkert það erfitt að gera okkur hamingjusamar. Mér finnst þetta ekki að ætlast mikið samt eru sumir hlutir bara svo erfiðir fyrir marga... !!!
* Hafðu V-in þrjú í huga. Vinátta. Virðing. Væntumþykja.
* Snertu konuna þína oft á dag og láttu hana finna með orðum og atlotum hversu mikið þú
elskar hana og hversu mikils virði hún er.
* Komdu henni á óvart með gjöfum, tilbreytingu, óvæntum uppákomum og ferðalögum.
* Taktu ábyrgð á uppeldi barnanna til jafns við hana og talaðu við þau sem jafningja og vini.
* Sinntu heimilishaldi af kostgæfni og temdu þér yfirsýn á heimilinu. Þú veist hvað þarf að
kaupa, hvenær þörf er á að þrífa, þvo og taka til hendinni. Stingdu jafnvel af með henni.
* Treystu henni fyrir öllu sem kemur fyrir í lífi þínu, ekki síst ef eitthvað angrar þig. Betur sjá
augu en auga.
* Hvettu hana til að sækja námskeið, ráðstefnur, fundi eða fara í nám sem munu klárlega
bæta við þekkingu hennar og auka þroskann. Hún verður að fá að njóta sín á þeim vettvangi
þar sem þú veist að hún bómstrar.
* Sýndu áhugamálum hennar áhuga og tryggðu að þið eigið einhver saman.
* Vertu ábyrgur í fjármálum og láttu hana finna að hún sé fjárhagslega sjálfstæð.
* Veittu henni það frelsi sem þú veist að hún óskar eftir, hvar sem er og hvenær sem er því
allir þurfa rými, afskiptalaust.
* Ræddu opinskátt við konuna þína um hvað hana langar að upplifa í kynlífi og leggðu þig
fram um að veita henni fullkominn unað, eða frelsi til athafna.
* Elskaðu hana skilyrðislaust og treystu henni til að taka réttar ákvarðanir undir hvaða
kringumstæðum sem er. Jafnvel þótt þær séu þér í óhag.
* Elskaðu hana mest þegar þér finnst hún síst eiga það skilið.
Móðirin næst:)Skvísur
Takk takk allir saman fyrir yndislegan dag í afmælinu hjá Maren Dögg, og takk fyrir dömuna. Allt gekk bara voða vel og var ótrúlegt að hægt hafi verið að halda afmæli hér heima þar sem íbúðin var fokheld um morguninn, hann elsku pabbi minn var hérna að setja upp ljós um morguninn og kvöldið áður var hann að setja saman rúmmið sem Maren fékk frá ömmu og afa, ekkert frí fyrir afa, eða ömmu sem gerði alla heitu réttina eins og hún hafi fengið borgað fyrir það
Elska ykkur.Litla daman mín svaf ekkert allan dagin og um kvöldið tókum við því smá rólega og pússluðum og skoðuðum nýja dótið sem hún fékk svo fór hún í nýju babbabæjar náttfötunum sínum til pabba síns og henni var sko alveg sama að þau voru nánast 10 númerum of stór og svo snjógallan yfir, bara krúttlegt.
Í gær svaf hún svo fyrstu nóttina í stórubarna rúmminu það gekk vel eftir að hún sofnaði, kom bara 5 sinnum fram úr, hvað helduru að maður vilji liggja þegar hægt er að fara sjálf framm. Eitt skiptið heyrði ég ekkert í henni og kíkji inn þá er hún farin úr rúmminu og liggur í mínu rúmmi voða sátt. Hún gafst upp á endanum og sofnaði.. einum og hálfum tíma seinna

Annars gengur lífið bara sinn vanagang, ég mæti í vinnu og barnið í leikskólann. Ég fór samt og sótti um skóla um daginn, Heilbrigðiskólann í FÁ, var að spá í að klára tanntækninn á bara 1 ár eftir og tæpt hálft ár í verknámi.. en ég er víst að breyta um skoðum enn eina ferðina, er að spá í að fara norður á Akureyri, ég veit, ég veit.. sveit ! En er að spá í að læra hjúkrun og gera það þarna, mun ódýrar að lifa þarna, leigja, leikskóli, bensín og já pössun á hverju strái
Hvernig hljóma ég sem Guðrún Ósk hjúkrunarfræðingur er það ég eða ... ? Kveðjum í bili ætla að fara að hjálpa konunni að elda, og koma Maren í rúmmið um 7 ef hún á að sofna á réttum tíma. Njee
2 ára damaSkvísur
Litla barnið mitt sem mér finnst hafa fæðst í gær er núna tveggja ára, hún er búin að eiga nokkuð góðan dag, fyrir utan það að hafa verið lasin alla vikuni og hefur ekkert komist á leikskólann. Í staðinn kom pabbi hennar í morgun með bananaköku handa henni, svo kom Ellen og Alexander heim og bakaði hún súkkulaðiköku og amma Helga, afi Alli, Aldís og Heiðdís komu í heimsókn. Maren Dögg fékk tvö pakka bollastell og kúst með fægiskóflu, fer henni ekkki smá vel þar sem hún er alltaf með tusku á lofti eða með blessuðu moppuna alveg stórhættuleg mönnum og hlutum hér á heimilinu.
Maren fékk þó nokkru sinnum afmælissöng svo seinna um kvöldið söng hún bara.. ,,ég líka, ég líka" aftur og aftur sem hefur örugglega átt að vera Hún á afmæli í dag, hljómaði þannig. Þetta er allt að koma hjá henni, ný orð á hverjum degi, enda er mar ekkert lítill lengur.

Svo stefnum við á að hafa afmælisveislu þann 8 nóv, ég veit dáldið í seinni kantinum en Bára Lind frænka er 25 um helgina og Aníta Rán með 3 ára veislu á sunnudeginum, við ætlum að njóta annar manna afmæla þessa helgi
Ekki má gleyma dúllunni minni honum Sveinbirni sem fékk Maren í afmælisgjöf fyrir tveim árum. Til hamingju með daginn kútur.
Takk allir fyrir alla kveðjurnar.
knús knús.
Styttist í heimför:)Skvísur
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram fyrir nokkrum dögum var ég búin að vera í 2 vikur og núna á ég tvö daga eftir hérna. Ég bíð eftir því að koma heim er búin að henda í tösku og alles er að spara fötin, minni þvottur enda var Pilar spænska móðir mín að þvo allt.Svo er líka mjög erfitt að vera á öðru landi þegar litla daman er búin að vera veik og pabbi hennar líka, hún fékk þvagfærasýkingu og háan hita með því, en er komin á sýyklalyf sem að gengur ekkert sérlega vel að gefa henni heyrði ég, en amma hennar bjargar því eflaust

Síðust helgi fórum við fjórar vinkonurnar til Sevilla sem er um 2 og hálfan tíma í burtu frá Malaga, tókum lest fyrir átta um morgunun á laugardeginum, komum í Sevilla um 10 í grenjandi rigninu og þrumur og eldingar, sem var ekki til að bæta ofan á nóttina þar sem ég ráfaði um allt hús var svo hrædd við þrumuveðrið. Sevilla er höfuðborg Andalúcíhéraðsins og ákváðum við að vera í tvö daga enda stór borg og mikið að sjá, fundum rosa gott gistiheimili á skít og kanil, um kvöldið spiluðum við svo drykkjuspil og skáluðum og nutum þess að geta vera einu sinni saman inni, getum ekkert tekið mikið á móti gestum hjá fjölskyldu.

Þetta er dómkirkjan í Sevilla, alveg ótrúlega falleg, við fórum inn að skoða hana og löbbuðum 98 m upp í turninn til að sjá yfir borgina, ekkert mál að labba upp en fara niður var aðeins verra, manni langaði að hlaupa en er ekki mögulegt. Okkur skildist best að Kristófer kólumbus væri grafsettur þarna, en ekki taka mig á orðinu.
Við áttum svo allan sunnudaginn í Sevilla og fyrst um morguninn langaði okkur til að deyja vitandi til þess að við þyrftum að ráfa um alla daginn, en svo opnuðu allar búðir og það kættust allir, fórum líka 2 á Starbucks sem bjargaði stelpunum. Dagurinn leið fljótt enda margt að sjá og þessi borg heillaði mig alveg, Þegar heim var komið fór ég beint upp í rúm og svofnaði í fötunum.
Það var ekki smá nice að hafa svo mánudaginn frí, enginn skóli og nánast allt lokað, málið er að þjóðahátíðadagur spánverja var á sunnudeginum og samkvæmt lögum verður rauður dagur að vera á mánudegi ef hann lendir á helgi, þægilegt fyrir opinbera starfsmenn en kemur á sama fyrir búðafólk.
En ég lá bara á ströndinni og pakkaði niður. Gær fór ég svo að sjá kastallann í Malaga, þýðir ekkert að sjá allt í kring en ekki í ,,heimbæ" sínum, hann sýnir samt ekki mikið en bara útsýni. Núna á eftir er Pilar að fara að kenna mér að gera Paellu svo fer ég til Torrimolinos, verð aðeins að kíkja þangað á svo margar góðar minnigar þaðan, með Heiðu Frænku, Svönu og strákunum, Elínu og Pétri, Súnu og skaranum, systrum mínum og öllum.. ohh elska þennan stað

Sé ykkur fljótlega

Vill nota tækifærið til að óska Pétri til hamingju með 31 árs afmælið á sunnudaginn var og Andra með 28 ára afmælið á mánudaginn var. Knús og kossar strákar, kem með eina dömu af horninu í afmælisgjöf til ykkar.
RútudamanSkvísur
Hæ hæ aftur. Hvernig líst ykkur svo á snjóinn heima er hann ekki kósí, hérna er nánast alltaf sama verðið sól og hiti, það á samt eitthvað að fara lækkandi hitastigið núna niður í 22° eða svo. Nú spyr ég eins og fáfráðlingur, eru farin að sjást norðurljós heima, þar sem ég er alltaf að hitta fólk hérna sem vill ekki tala um neitt nema ísland og er voða spenntir yfir norðurljósunum, en þetta er bara svo eðlilegt fyrir mig að sjá hvern vetur að ég get ekki svarað hvenær þau eru.Síðasta helgi var alveg yndilsleg á laugardegunum fór ég með Ingu Rós og Charlotte vinkonum mínum til Rondu, eldgamall fjallbær 2 tíma í burtu, svona ekta spænskt hverfi, hvít hús og þröngar götur allar götum úr flísum og lagðar steinum með mynstrum í, alvega geggjað. Fórum nokkuð snemma um daginn og lenntum fyrst í grenjandi rigninu mér langaði til að fara að gráta, dagur virtist ætla að vera slæmur og ekki bætti úr því að kvöldið áður var menningarlífið í Malaga aðeins skoðað.. úff. enn svo kom smá birta sem endaði með alveg yndislegu veðri.

Þetta fannst mér algjör snilld það er allstaðar hægt að finna McDonalds.
Ronda er mest fræg fyrir ,,held ég" þessa brú en hún er ekki smá mikið mannvirki, tengir saman gamla og nýja bæjinn. Það er fólk þarna uppi og við löbbuðun niður til að sjá hana aðeins betur vorum alveg dolfallnar.

Um kvöldið var svo tekin sú snögga ákvörum að taka smá bustrip upp til Torrivieja og hitta mömmu sína og pabba. Það tók ekki nema 11 tíma ferðalag til þeirra. Mætti hundblaut klukkan 10 sunnudagmorgunn. Fyrst til Murcia - svo Torrivieja, en þegar ég kom fannst mér ég virkilega vera komin heim og leið ekki smá vel. Enda stóð mér nú ekki heldur á sama að sitja á lestarstöð með Pakistana við hliðina á mér klukkan hálf 7 að morgni. Ekki það að þeir séu eitthvað verri en aðrir, bara tannlaust og ekki smá krípí.. jakk
Við mamma og pabbi hentum okkur á sítrónumarkaðinn í hádeginu, ég átti rólegt kvöld, en þegar gömlu hjónin er loks laus við öll börn og buru er nú erfitt að draga þau úr partýskónnum.. humm. Svo á mánudeginum fór ég með mömmu að versla á Maren Dgg mína sem mútta tók svo heim fyrir mig, en á meðan sleikti gamli þessa einu sól sem kom í fríunu þeirra. Um kvöldið lá svo heimleiðin aðra nokkra tíma. Ohh þetta var yndislegt. Knús og kossar á ykkur.
Vikan var svo fljót að líða, enda skrópaði ég í skólann á mánudegunum og svaf heldur betur yfir mig á þriðjudeginum en ég var fljót að ná mér upp og náði prófinu mínu að sjálfsögðu á föstudaginn.

Ein af okkur dömunum, Inga, Moi, Myrthe.. vantar Svanlaugu þarna, en hún var að flýja myndavélar eftir slæmt myndakvöld helginni áður. hehe
Jemm er ekki búin að gera mikið meira en að læra en það var aðeins fagnað prófunum í gær en farið snemma á fætur má ekki sóa neinu hérna úti bara 13 dagar eftir, svo á morgun fer ég með Ingu til Mijas, til vinafjölskyldu sem búa þar svo hún geti fengið íslenskt nammi þessa elska, og bara skoða eitthvað sniðugt
Adiós
Arrh..Skvísur
Ohh ég er svooo svekt var komin með heila færslu og klippti hana og allt fariðWell bjarga því í dag eða á morgun en í bíli:
- Heit
- Sakna íslands og allra á klakunum
- Mjög gaman, en mjög mikið að læra
- Náði prófi 2 á föstudag
- Er að fara á MCsteikhás
- Svo beint á ströndina
- Dýrt að versla hérna
- kem heim 17 okt á föstudegi.
Knús og kossar
MatartíminnSkvísur

Talandi um að grípa alla hendina.. það var beðið um rigninu en nei fengum flóð. Hef ekki upplifað eins mikla rigninu og í dag, eða kannski er nú íslendingur, en þessi rigning er yndisleg kemur beint niður og er bara heit, en í Madrid er bókstaflega flóð, allt á kafi, viljum það nú ekki.
Jæja verð að segja ykkur frá matartímanum hér, en eins og þið vitið borða spánverjar á daginn eða um 2 -4, við borðum klukkan 3 og það ekki smááá mikið, alltaf þrírétta matur, salat eða pasta, svo kjöt eða fiskur eða mitt uppháld Paella, svooo er alltaf ávöxtur, úff ég er alltaf afvelta og ekki furða að spánverjar taki Siestu. Spænska móðir mín eyðir svona 2 tímum í að elda matinn alltaf voða flott, er búin að borða túnfisk og lauk og allt hérna af því ég þori ekki að segja að ég borði það ekki
Talaði við Maren mína um daginn í gegnum tölvuna, gat því miður ekki sé hana en hún sá mömmu sína og er ekki búin að gleyma mér, sagði bara ,,taka, taka".. það var dáldið mikið erfitt en ég veit að hún er að hafa yndislegan tíma með pabba sínum búið að innrétta herbergið hennar voða kósí og allt. Hún er byrjuð í dansi í leikskólanum og gengur það víst voða vel , heima kveikir hún sjálf á græjunum þegar hún vill hlusta á tónlist og dansa. Við getum svo sannarlega dansað saman þegar ég kem heim.. eftir 25 daga.. ógeðslega fljótt að líða.
Á mánudaginn fór ég svo í próf og náði alveg big time, fékk 8.5, tek það samt fram að ég var sett í byrjendaáfanga þar sem ég klúðraði upphafsprófinu gjörsamlega, en það er voða gott að rifja upp. Þannig helgin var bara róleg, las allan sunnudaginn og gerðist svo voða menningarleg og fór á Argentíska mynd í bíó með stelpunum, Che, veit ekki hvað ég skildi mikið en jamm .. hehe, næst ætlum við á gamanmynd þá getum við allavega hlegið af einhverju þegar við skiljum ekki.
Kveð bili fer að koma matur svo er það salsa í kvöld
Buenas días.. Skvísur
Nú er ég víst komin hingað til spánar og búin að vera í nokkra daga. Ég viðurkenni það að á fyrsta degi hugsaði.. ,, hvað í anskotanum er ég að gera hérna " . Ég bý hjá eldri hjónum sem tala gjörsamlega enga ensku, jú jú sem er jú fínt en fyrsta daginn sagði ég ekkert nema, sí, sí og bien, jú og gracias. Var eins og algjör asni
En ég skil þau nú nokkuð vel á bara erfitt með að tjá mig, kannski er þetta feimni kannski kann ég bara ekkert í spænsku. Kemur í ljós. Við búum allavega hérna langt upp á hæðinni, ég, spænska móðir mín Pilar sem er allan daginn að pota að mér mat, svo er það Blás maðurinn hennar, voða fínn talar bara dáldið mjög hratt og mikið, já og einn enn, furðulegi Mark frá Sviss, 35 ára læknanemi, hann er svo sem alveg ágætur orðin góður í spænskunni og talar endalaust mikið, ég kemst aldrei að við matarborðið og svo hann hreyfir ekki á sér rassgatið, fer í skólann, heim og er bara heima að fara yfir orðaforðann sinn... WHAT.. !! Gott að vera duglegur að læra en eitthvað félaglíf verður maður að hafa.
Í kvöld var ég til að nefna í Flaminco tíma í klukkutíma og fór svo beint í magadans, svo er salsa og bíókvöld á morgun
flaminco er ekki smá erfitt, tapp , tipp og klapp úff. Já ! ! Ég er líka að læra, er í skólanum fra 8:30 -12:40 og svo er heimavinna og verð að vera mætt í hádegismat (kvöldmat) klukkan 3
Dadarara.. herbergið mitt er rosa næs, næ netinu úr einhverri annarri íbúð, er með sjónvarp en get ekki skipt um stöð og það er fótbolti nánast öll kvöld, en til að komast alveg inn í spænska menningu verð ég að fíla fótbolta, gamla á heimilinu veit allt um spænska boltann, og þegar það koma íþróttafréttir þá þeiga allir og hún hækkar í sjónvarpinu. Sjáið þið ekki ömmu ykkar fyrir ykkur setjast niður og horfa á fótboltann.. haha![]()
Ahh má ekki gleyma yndislega hundinum sem býr hérna líka, hann Indí algjört rassgat.
Hvað meira get ég sagt ykkur. Sannur íslendingur gleymir ekki að segja frá veðrinu. Á nóttunni er skítakuldi og ég er komin með 3 teppi, ég fæ ekki að fara út á morgnanna nema í peysu, sem betur fer því það er skítkalt, en upp úr 12 er grill til svona 7 um kvöldið, og þá byrjar að kólna, engina íslandskuldi en maður er svo léttklæddur að það þarf ekki mikið. Ooog loksins, loksins, það ringdi í dag í 30 mín og á að rigna aftur á morgun, vonandi, búið að rigna í allt sumar í u.þ.b 1-2 tíma. Vildi að við gætum sent eitthvað hingað frá klakanum, frétti af brjáluðu veðri heima og fljúandi trampólínum : MAMMA !!
Held að þetta sé gott í bili farin að drepa flugu og lúlla. Talandi um flugur, er með moskító ljós og lykt, og moskítófælir á mér er samt komin með tvö stór og óþægileg bit, hvað skal gera áður en það verður ekkert eftir af mér ?
Adiós.
Ástarkveðjur og knús til allra og stórt til snúllunnar minnar. Elska þig út um allt![]()
